6) TÓNLISTARHNEYKSLIÐ RÚV - RÁS 1 - "MENNINGARMORÐ" Í HÁSKÓLABÍÓI 2013 - SJÁ UPPTÖKU FRÁ FUNDINUM

Höfundaréttur © Guðmundur Emilsson. Allur réttur áskilinn samkvæmt Bernarsáttmálanum, með viðaukum.
Menntastofnunum er heimilt að nota þessa síðu sé eigenda höfundarréttar getið.

7. mars 2022

Ek í virðulegu samkvæmi sl haust. Ramba þar á ráðherra, núverandi eða fyrrverandi (?). Segi í óspurðum fréttum, að nú sé búið að leggja niður menningarútvarp í þágu almennings á Íslandi. Það mál rætt! Ráðherra segir: Guðmundur minn, nú fel ég þér að gera úttekt og senda mér skýrslu. Kem henni í hendur viðkomandi fagráðherra með hækkandi sól. Svo mörg voru þau orð. Og þó. Ég sagði, held áfram að reyna að ná símsambandi við útvarpsstjóra. Ég hef gefist upp að tala við dagskrárstjóra Rásar 1, hann er dónalegur // Þetta samtal fór fram sl haust.