6) TÓNLISTARHNEYKSLIÐ RÚV - RÁS 1 - "MENNINGARMORÐ" Í HÁSKÓLABÍÓI 2013 - SJÁ UPPTÖKU FRÁ FUNDINUM

Höfundaréttur © Guðmundur Emilsson. Allur réttur áskilinn samkvæmt Bernarsáttmálanum, með viðaukum.
Menntastofnunum er heimilt að nota þessa síðu sé eigenda höfundarréttar getið.

5. mars 2022

Ræddi símleiðis við eðalstarfsmann RÚV sem ég þekki frá barnæsku (eiginlega fæðingu) þe Hjört Pálsson rithöfund - og einnig Ævar Kjartansson sem ég hef þekkt sl 30 ár. Þeir töluðu hógværlega enda báðir hættir störfum hjá RÚV // Næst er að ná í Gunnar Stefánsson fyrrum dagskrárstjóra Rásar 1 og Margréti Oddsdóttur sem tók við embætti hans - en þau eru einnig hætt störfum hjá RÚV. Þetta eru allt vinir mínir til áratuga. Þannig púslar maður saman sögu! Hún verður sögð!