6) TÓNLISTARHNEYKSLIÐ RÚV - RÁS 1 - "MENNINGARMORÐ" Í HÁSKÓLABÍÓI 2013 - SJÁ UPPTÖKU FRÁ FUNDINUM

Höfundaréttur © Guðmundur Emilsson. Allur réttur áskilinn samkvæmt Bernarsáttmálanum, með viðaukum.
Menntastofnunum er heimilt að nota þessa síðu sé eigenda höfundarréttar getið.

5. mars 2022

Stjórnsýsluúttekt mín í 4 mánuði á starfsemi RÚV, að höfðu trúnaðarsamráði við fyrrverandi og núverandi starfsmenn, leiðir í ljós - að gengi RúV hefur fallið svo gjörsamlega á 20 árum að nú stefnir í menningarlegt gjaldþrot. Þetta er ekki ósk mín, heldur martröð þriggja feðga sem hafa starfað að viðgangi þessarar stofnunar í hartnær heila öld. Nú beinist kastljósið að sökudólgnum, kannski næstu 4 mánuði - eða lengur.