6) TÓNLISTARHNEYKSLIÐ RÚV - RÁS 1 - "MENNINGARMORÐ" Í HÁSKÓLABÍÓI 2013 - SJÁ UPPTÖKU FRÁ FUNDINUM

Höfundaréttur © Guðmundur Emilsson. Allur réttur áskilinn samkvæmt Bernarsáttmálanum, með viðaukum.
Menntastofnunum er heimilt að nota þessa síðu sé eigenda höfundarréttar getið.

24. febrúar 2022

Hvað liggur mér á hjarta á aldarafmæli móður minnar - þetta: Þröstur Helgason er hér með sakaður um lögbrot - brot á lögum Alþingis um Ríkisútvarp þjóðarinnar. Því ber að lögsækja hann. Það er ekki í mínum verkahring, heldur ríkissaksóknara - að rannsaka eftirtaldar sakargiftir og ákveða um saksókn - eða hvað þetta nú allt heitir á tungumáli lögmanna og lögfræðinga. Til vara, að gerð verði stjórnsýsluúttekt á rekstri Rásar 1, en það ku vera í höndum mennta- og menningarmálaráðherra. GE