6) TÓNLISTARHNEYKSLIÐ RÚV - RÁS 1 - "MENNINGARMORÐ" Í HÁSKÓLABÍÓI 2013 - SJÁ UPPTÖKU FRÁ FUNDINUM

Höfundaréttur © Guðmundur Emilsson. Allur réttur áskilinn samkvæmt Bernarsáttmálanum, með viðaukum.
Menntastofnunum er heimilt að nota þessa síðu sé eigenda höfundarréttar getið.

23. febrúar 2022

UM ÞJÓÐSKÁLD OKKAR
Hér er dæmi um ófyrirgefanlegt tómlæti Rásar 1, Sjónvarpsins og Sinfó, gagnvart tveimur þjóðskáldum sem létust fyrir nokkrum árum, þeim Atla Heimi Sveinssyni og Þorkatli Sigurbjörnssyni // Þessar milljarða-króna-dauðu-hendur-ríkisins hafa hvorki hreyft legg né lið til að minnast áðurnefndra stórskálda - er gáfu þjóðinni allt sitt // Hvar voru yfirmenn þessarar þessara stofnana eiginlega menntaðir - eða öllu heldur ómenntaðir? Á "Suðureyri", í verbúðum, í Hafnarstræti - í ræsinu - með fullri virðingu. Ég vorkenni þeim: hreinlega vorkenni svo vanhæfum mönnum, sem eru settir yfir stórt - en starfinu ekki vaxnir. Vei þeim öllum. Hafið vit á að segja upp störfum og skammast ykkar.