Beethoven Tónleikar (2KLST): https://www.youtube.com/watch?v=P6EdMgtOqIo
Sjá einnig: https://soundcloud.com/user911478883/tracks (dæmi um hljóðrit GE)
Höfundaréttur © Guðmundur Emilsson. Allur réttur áskilinn samkvæmt Bernarsáttmálanum, með viðaukum.
Menntastofnunum er heimilt að nota þessa síðu sé eigenda höfundarréttar getið.
30. janúar 2022
GUFAN. Segjum, að undirritaður kunni dagskrá Gufunnar afturábak. Þá er við því að búast á sunnudagsmorgni, að Maestra Una Margrét Jónsdóttir, síðasti virki tónlistar-dagskrárgerðarmaður Gufunnar segi eittvhað gott og merkilegt um tónlist, gamla og nýja, kl 08:00, og að dagskrárstjóri fegri sig með formála Unu Margrétar og hefji spjall kl 09:00 um eitthvað rosalega gáfulegt, við gest, sem er rosalegum gáfum gæddur - í 60 mín. Mikið bla bla á báða bóga. Vin vor Ævar Kjartansson hóf þetta gáfumannaspjall fyrir margt löngu, en hafði hljótt um sig og lét tvo gesti sína sjá um deilumál, en súmmeraði upp í lok þáttar hvað gestir hans hefðu verið að þvarga um. Einstök dagskrárgerð! En ekki hjá núverandi dagskrárstjóra. Hann lætur ljós sitt skína! Og skína og skína í 60 mín. Dauflega þó. Mætti ég frekar biðja um KK, Svanhildi eður manninn sem lék allar hljóðritanir Hljóma viku eftir viku, og tilgreindi upptökudaga, erlenda session menn og allt og allt sem stóð á plötuumslögum - án þess að geta þeirra áreiðanlegu heimilda.